Jæja, frúin stokkin úr bænum ásamt tengdamóður minni, mágkonu og mági. (Las það í vef-Mogganum að Guðmundur og félagar í HK hafi verið að rúlla upp fótboltamóti í Danmörku. Ekki var systir hans að segja mér neitt frá þessu, enda kærir hún sig kollótta um knattspyrnuferil bróðursins.) Leið þeirra liggur austur á Norðfjörð. Neistaflug verður af komu minni að þessu sinni.
Og hvað gera menn á ofanverðum þrítugsaldri þegar þeir eru skildir einir eftir í kotinu? Tja, að hangsa í vinnunni er alltaf sterkur leikur. Þar er ég núna kl. hálfníu að þriðjudagskvöldi.
En eitthvað annað verður maður að afreka á heilli viku? Jú, til stóð að koma Neista nýrrar aldar í gegnum skoðun, en mínir menn í Bílhúsinu hlógu bara að mannkertinu sem hringdi á þriðjudegi og hélt að hann gæti fengið tíma fyrir verslunarmannahelgi. Engar bílaviðgerðir hjá Stefáni.
Það þarf vissulega að slá blettinn – einkum úr því að við erum búin að bjóða hann fram sem krakkaleikvöll hverfisins. (Þá ættu helvítis Orkuveitu-trukkarnir í hverfinu ekki að aka yfir þau á meðan. Hversu marga trukka getur eiginlega þurft í að skipta um nokkrar vatnsleiðslur?)
Ég þarf líka að komast í að skoða bækurnar hjá afa og ömmu, en fullnaðarfrágangi á þeim er ekki lokið eftir stórframkvæmdirnar á dögunum. Núna eru skáldsögurnar innan um ljóðabækurnar og fúlar samtalsbækur við þotulið innan um Laxness. Sjálfum þykir mér reyndar þannig uppstilling í fínu lagi, en veit að fæstir eru mér sammála.
Svo er fótboltinn. Hið reglubundna afhroð gegn Grindavík á Laugardalsvelli verður á fimmtudaginn. Ég myndi spá okkur sigri eða jafntefli, en þá myndu allir halda að ég sé fullur í vinnunni…
Auðvitað ætti ég líka að reyna að pússa upp og lakka gluggann á baðinu… gæti meira að segja fengið pabba í lið með mér. – En ég nenni því ómögulega.
Óli Jó kemur til landsins á sunnudagskvöldið. Það þarf jú að taka á móti honum og drekka tollinn. Það fer heilt kvöld og fyrri hluti mánudags í það…
Og svo er snatt og snúningar fyrir kertafleytinguna á miðvikudagskvöldið.
Ókey – þetta ætti svo sem að duga fyrir eina viku.