Úff hvað þetta er leiðinlegur dagur. Ég stend í stappi – bæði við launadeildina og tölvudeildina. Kemst ekki frá en þyrfti að komast í að útrétta. Best að brjóta þetta upp með getraun.
Spurt er um mann.
Maðurinn sem um er spurt er af óræðu þjóðerni. Strangt til tekið er hann bandarískur, flestir álíta hann þó vera Svía eða í það minnsta Norðurlandabúa.
Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið 4. febrúar árið 1973.
(nú er klukkan 14:25 – næsta vísbending verður sett inn kl. 15:25 ef ekki hefur áður borist svar í athugasemdakerfinu…)