Á gær virðist ég hafa álpast inn í tímavél sem flutti mig aftur til ársins 1999. Það var tíminn þar sem ég fór á Næsta bar hverja einustu helgi, oft bæði kvöldin, sat of lengi, drakk of mikið, greip kebab á leiðinni heim og át fyrir svefninn. Vaknaði þunnur og var tuskulegur fram eftir degi.
Svona liðu allar helgar. Oftast fannst mér gaman, enda var aldrei skortur á skemmtilegu fólki á NB.
Gærkvöldið var fullkomið afturhvarf. Nokkrir bjórar í heimahúsi, svo rokið í bæinn og setið fram að lokun. En þetta var ekki eins. Einhvern veginn langaði mig ekkert að hanga þarna, staðurinn var yfirþyrmandi, bjórinn fór illa í mig og reykingarlyktin var pirrandi.
Fyrir fjórum árum hefði þetta verið fín uppskrift að laugardagskvöldi, en núna virkaði það bara alls ekki. Á dag gæti ég ekki hugsað mér að detta aftur inn í þessa gömlu rútínu.
* * *
Píparinn mætti í morgun með tilboð í klóakframkvæmdirnar og nýja drenlögn. Það er ekki gefið. Verst er að eftir nokkrar vikur á ég eftir að standa mig að því að benda gestum á nýju drenlögnina mína fullur stolts!
* * *
Luton kjöldregið gegn Oldham & Hearts með jafntefli á útivelli gegn Motherwell. Ekki gott.