Kominn úr kirkjunni. Falleg athöfn. Munur að fá almennileg herstöðvaandstæðingalög í staðinn fyrir alla sálmana. Fylgd er samt ekki lag fyrir hetjutenóra, mun betra að heyra það sungið af einlægum en ekki sérstaklega raddsterkum söngvara eða kór.
Hef mætt nokkrum sinnum í útfarir í Fossvoginum, en finnst eins og það hafi alltaf verið í kapellunni. Minnist þess ekki að hafa komið í kirkjuna fyrr.