Leikhúsferð í kvöld. Ætlum að skella okkur ásamt mömmu og pabba á Hugleik í Tjarnarbíói. Það verður gaman.
Á gær var settið og skrafað heima hjá Kötu og Davíð. Auk okkar Steinunnar voru Sverrir, írmann, Steini og Kolbeinn á svæðinu. Það var gaman.
Sé fyrst núna að Luton gerði jafntefli á útivelli gegn QPR í gær. Það er gaman.
ístæða þess að ég vissi þetta ekki strax í gær er að Textavarpið er að fokka upp síðu 354, þar sem enska 2. deildin er rakin. Þeir setja okkur í 60 stig í sjötta sæti en ekki 58 í áttunda sæti. Það er ekki gaman.
Ef svo fer sem horfir verður keppni föstudagsins tilbúin strax í fyrramálið og ekki útlit fyrir neinu pikklesi með myndir. Spurningarnar eru góðar, held ég – enda ekki laust við að maður hafi byrjað að „taka frá“ mögulegar úrslitaleiksspurningar um leið og samningin á þessum ósköpum hófst. Þetta verður sem sagt gaman.
Jamm.