Neibbs, ekki varð neitt úr leikhúsferðinni fyrirhuguðu. Veikindi í leikarahópnum og sýningin felld niður. Fórum þess í stað með gömlu á Vitabar. Það var fínt.
* * *
Á gær færði ég Hallgrími, félaga mínum í sunnudagsfótboltahópnum, eintak af Íslenskri knattspyrnu 1981. Hallgrímur átti fyrir allar bækurnar í bókaflokknum nema þessa (þá fyrstu) og kvaldist yfir því. Á dögunum rakst ég svo á eintak í Góða hirðinum fyrir 150 krónur.
Af öðrum bókakaupum síðustu daga mætti nefna velheppnaðan Kolaportsleiðangur. Þar fékk ég ístrík og bændaglímuna á ensku; Svall í landhelgi m. Samma & Kobba auk einhverrar 4 fræknu-bókar sem ég veit ekki alveg hvers vegna ég var að kaupa. Skrípóskápurinn gildnar enn.