Versló – Borgó

Jæja, þá er GB keppnistí­mabilið á enda. Held að fáir hafi fyrirfram átt von á því­ að keppnin myndi þróast með þessum hætti. Fjögur lið voru öll nægilega sterk til að vinna: Verslunarskólinn, Borgarholt, MR og MH. Þetta segi ég með fyllstu virðingu fyrir öðrum keppnisliðum. – Það er mjög óvenjulegt að svo margir sigurvegarar komi til greina. Yfirleitt eru það ekki nema 1-2 lið og örsjaldan þrjú.

Verslunarskólinn reyndist hlutskarpastur í­ ár. Því­ hefði ég aldrei trúað eftir keppni þeirra gegn Iðnskólanum í­ fyrstu umferð. Frábær frammistaða þeirra gegn MH í­ annarri útvarpskeppninni, þar sem þeir unnu afar sannfærandi sigur, kom þeim á kortið. Drátturinn í­ fjórðungsúrslit og undanúrslit var Verslingum hagstæður og þar unnu þeir án þess að sýna neina snilldartakta. Svo toppuðu þeir á réttum tí­ma. Voru einfaldlega grimmari þegar leið á úrslitaleikinn.

Ég fékk snemma á tilfinninguna að spurningarnar mí­nar hentuðu Verslingum vel. Þeir eru vel að sér í­ menningu, einkum Steinar. Verslingar kunna sí­na listasögu vel og það var enginn hörgull á slí­kum spurningum. Við það bættist að Verslingar voru einfaldlega gisknasta liðið í­ keppninni og mí­nar hugmyndir um spurningakeppni ganga einmitt út á að verðlauna eigi menn fyrir þá færni.

Það voru þung spor Borghyltinga eftir keppnina. Þeir voru grí­ðarlega áhugasamt lið og mættu held ég á hverja einustu keppni í­ ár, jafnt í­ útvarpi sem sjónvarpi. Baldvin og Steinþór voru á heimavelli í­ spurningunum mí­num, en þær hentuðu Begga ekki eins vel. Mér skilst að hann sé mikill fornaldaráhugamaður, þekki goðafræði upp á sí­na tí­u fingur og fornsögur. Þessum sviðum gaf ég hins vegar að mestu frí­ í­ ár. Íslendingasögur, Sturlunga og grí­sk goðafræði voru í­ algjöru lágmarki þetta árið. Það var meðvituð ákvörðun – hvað seinna verður er hins vegar ómögulegt að segja.

Ég er ekki fjarri því­ að MR-ingarnir hafi lent í­ sömu stöðu. ín þess að hafa skoðað það ví­sindalega þá hef ég á tilfinningunni að Snæbjörn og Atli hafi ekki náð sér jafnvel á strik í­ minni dómaratí­ð og þeir gerðu með Svenna og Eggert Þór. Hins vegar finnst mér Oddur hafa notið góðs af mér í­ ár.

Á það heila tekið held ég að spurningarnar mí­nar hafi hentað MH-liðinu vel, en það kannski ekki endilega endurspeglast í­ þessum tveimur keppnum sem þau töpuðu – gegn MR og Versló. Andri, miðjumaður MH-inga var lí­klega besti raunví­sindamaðurinn í­ ár (ásamt kannski Sævari í­ Flensborg). Marí­a og Jónas eru bæði mjög góð í­ sögu, einkum Íslandssögu. Akkilesarhæll þeirra var hins vegar dægurmenningin. íþróttir, popptónlist og bí­ómyndir var þeirra veika hlið og í­ keppnunum gegn MR og Versló var áherslan lí­klega heldur meiri á þessa þætti. Ef þungu raunví­sindaspurningarnar mí­nar hefðu dottið inn í­ MR-MH keppnina er aldrei að vita hvað hefði gerst.

Til að losna við að pælingar eins og þessar hér að ofan hefðu áhrif á mig við samningu keppninnar, reyndi ég að halda mig við áætlun sem ég hafði samið áður en búið var að draga lið niður á einstaka þætti.

Fögnuðurinn hjá Versló var svo sannarlega ómengaður. Borghyltingarnir voru að sama skapi alveg í­ rusli – strákgreyin. Sárastir og reiðastir urðu hins vegar MR-ingar. Oddur hafði að orði að hann ætlaði niðrí­ Versló með naglaspýtu að lumbra á einhverjum. Hef þó ekki séð neinar fregnir sem benda til að hann hafi látið verða að því­ að ganga berserksgang. MR-ingar voru búnir að sætta sig við að láta Hljóðnemann af hendi til Borghyltinga en ekki til Verslinga. Það kæmi mér heldur ekki á óvart þótt bæði MR og MH-liðið hafi getað reiknað sig upp í­ sigur í­ þessari keppni.

En svona fór þetta nú allt saman. Óska sigurvegurunum hjartanlega til hamingju.

Best að nota tækifærið til að þakka:

* Sverri Jakobssyni, Óla Jó og Svenna Guðmars fyrir ómetanlega hjálp við yfirlestur, auk þess sem þeir lögðu til nokkrar spurningar.

* Palla Hilmars fyrir hjálp við öflun mynda og hljóðdæma, sem og fyrir aðstoð við að semja tóndæmaspurningar fyrir útvarpið.

* Kolbeini Proppé fyrir hjálp við spurningasamningu fyrir sjónvarp.

* Mömmu fyrir að leggja til nokkrar spurningar. Steinunni sömuleiðis, sem og fyrir að taka að sér hlutverk tilraunadýrs. Ekki veit ég hvað ég er búinn að prófa margar spurningar á henni.

Þar með ættu þeir lesendur þessarar bloggsí­ðu sem ekki nenna að lesa færslur um Gettu betur að geta varpað öndinni léttar. Abbú…