Og verðlaunin fyrir þjóðhverfustu frétt dagsins fær…
…netútgáfa Moggans fyrir þessa frétt:
Þekking á sögu Íslands reyndist bandarískum pilt happadrjúg
Þekking á sögu Íslands kom sér vel fyrir 14 ára bandarískan skólapilt því hún varð til þess að hann vann landafræðikeppni Georgíuríkis í Bandaríkjunum.
Robert Nuttall frá borginni Decatur vann keppnina er hann vissi svarið við lokaspurningunni en þar var spurt hvaða land milli Danmerkursunds og Noregshafs hefði á sínum tíma lotið yfirráðum Noregs og Danmerkur.
Ísland, sagði Nuttall og hafði sigur í keppninni sem fram fór í bænum Milledgeville á föstudag. Fráfarandi meistari, Martin Ocon frá bænum Cumming, sagði Grænland og varð því annar í keppninni.
Að launum fær Nuttall þátttökurétt á bandaríska landfræðimeistaramótinu í Washington í lok maí.
Vonandi mun Mogginn fylgjast með því hvernig Nuttall gengur í úrslitakeppninni…