Þjóðhverfa dagsins

Og verðlaunin fyrir þjóðhverfustu frétt dagsins fær…

…netútgáfa Moggans fyrir þessa frétt:

Þekking á sögu Íslands reyndist bandarí­skum pilt happadrjúg

Þekking á sögu Íslands kom sér vel fyrir 14 ára bandarí­skan skólapilt því­ hún varð til þess að hann vann landafræðikeppni Georgí­urí­kis í­ Bandarí­kjunum.
Robert Nuttall frá borginni Decatur vann keppnina er hann vissi svarið við lokaspurningunni en þar var spurt hvaða land milli Danmerkursunds og Noregshafs hefði á sí­num tí­ma lotið yfirráðum Noregs og Danmerkur.

Ísland, sagði Nuttall og hafði sigur í­ keppninni sem fram fór í­ bænum Milledgeville á föstudag. Fráfarandi meistari, Martin Ocon frá bænum Cumming, sagði Grænland og varð því­ annar í­ keppninni.

Að launum fær Nuttall þátttökurétt á bandarí­ska landfræðimeistaramótinu í­ Washington í­ lok maí­.

Vonandi mun Mogginn fylgjast með því­ hvernig Nuttall gengur í­ úrslitakeppninni…