Jæja, Katrín.is þolir mig ekki. Svo virðist sem ég hafi látið eitthvað flakka fyrir tveimur árum og það hefur enn ekki verið fyrirgefið.
Spurning hvort maður eigi eigi ekki að biðjast afsökunar þótt seint sé?
Fyrir svona tveimur árum var blogg-heimurinn talsvert öðruvísi en nú er. Þá voru bloggararnir miklu færri, en blogg-súperstjörnurnar miklu meira áberandi. Það var hreinlega útvarpsefni ef Katrín eða Beta rokk létu eitthvað krassandi flakka.
Á sínum tíma fannst mér hæpið í kringum þetta full mikið af því góða og ætli ég hafi ekki verið með einhverja pillu út af því. Hitt er svo annað mál að það var ekki við frægu bloggarana að sakast hvað sumt fólk gat fjargviðrast yfir þessu. Núna hafa blogg-stjörnurnar týnt tölunni ein af annarri. Hver veit núna hvar Beta rokk er niðurkomin?
Þannig að – Katrín, ef þú lest þetta – ég biðst afsökunar á dónaskapnum!