Þau verða stopul og stuttaraleg bloggin hjá mér fram að Skotlandsreisunni stóru. Ég ætla svo ekki að hreyfa við þessari síðu meðan á ferðalaginu stendur. Stefni meira að segja að því að halda mig að mestu frá öllu netsambandi – þó ekki væri nema til að minna mig á að heimurinn ferst ekki þó ég sé internetlaus í hálfan mánuð.
Tek símann með til útlandsins, einkum til að geta látið SMS-a á mig fréttir af FRAM. Meðan á ferðinni stendur missi ég af Grindavík (úti); Fylki (heima); 32-liða úrslitum bikarsins, sem og drættinum í þau og í 16-liða úrslitin.
Einnig eru öll önnur úrslit vel þegin.
Jamm.