Þvert á betri vitund keypti ég mér harðfisksbréf í 11-11 í gær. Þessir næfurþunnu pakkar innihalda sjaldnast góðan harðfisk. Hvers vegna drullast ég ekki oftar í Kolaportið til að kaupa almennilegan harðfisk – eða það sem betra væri, hvers vegna heimsækir konan sem selur pabba reglulega harðfisk ekki Norðurmýrina líka? Hver segir að bara Vesturbæingar kunni gott að meta?
* * *
Fituhjassinn ég mætti í gymið í fyrsta sinn í alltof langan tíma í gær. Litlu mátti muna að nærri færi fyrir mér eins og skipshundinum Jóni í texta Olgu Guðrúnar.
* * *
Þjálfari FRAM sagði upp. Hvað í ósköpunum erum við eiginlega búnir að hafa marga þjálfara á síðustu 6-7 árum? Það er þó óskandi að þetta verði til að rífa liðið upp.
* * *
Óli leit í heimsókn í gær. Prufuðum Jura Superstition-míneatúr, en það er ný framleiðsla frá Júru – móreykt bygg notað við framleiðsluna til að skapa Islay frekar en Highland-keim. Ekki galið. Virðing mín fyrir Júru-viskýi hefur stóraukist á liðnum vikum og mánuðum.
* * *
EM í kvöld. Stefnan tekin á höfuðstöðvar VG þar sem sett hefur verið upp sjónvarp vegna keppninnar. Portúgal eða Holland í úrslitin gegn Grikkjum – tja, eiginlega stendur mér á sama. Vona samt að Holland vinni ekki í vítakeppni. Ef sú yrði niðurstaðan væri Holland nefnilega komið í úrslitaleikinn út á EINN sigurleik og það gegn Lettum.