Auðvitað eru stjórnmál og Ólympíuleikar nátengd fyrirbæri. Hvers vegna halda menn eiginlega að Kínverjar keppist við að rusla upp leikunum 2008? Hvers vegna ættu Bandaríkjamenn annars að leggja svo mikið kapp á að hindra velgengni Kúbverja á íþróttasviðinu? Þegar breski Verkamannaflokkurinn felldi íhaldsmenn á sínum tíma lofaði flokkurinn meira að segja fleiri gullverðlaunum á næstu Ólympíuleikum. – íþróttir og stjórnmál eru nátengd fyrirbæri.
Það ætti því ekki að koma á óvart kýtingurinn sem orðið hefur í kringum auglýsingar frá Bush – um að „tvær nýfrjálsar þjóðir“ keppi á leikunum í Aþenu – Afganistan og írak.
Auglýsingu Bush má sjá hér.
íhugaverðari flötur á málinu hefur hins vegar komið upp varðandi umfjöllun íþróttafréttaritara Sporting Illustrated um viðbrögð íraka við auglýsingunni. Grant Wahl tók tali nokkra liðsmenn íraska knattspyrnulandsliðsins, sem náð hafa langbestum árangri íraskra keppenda. (Það kemur svo sem ekki á óvart, enda írak löngum verið ein sterkasta knattspyrnuþjóð arabaheimsins, þótt Baldvin Þór Bergsson telji að þar hafi talibanar ráðið ríkjum og bannað keppni í fótbolta.)
Grant Wahl uppgötvaði að írösku leikmennirnir voru foxillir. Að þeirra mati er Bush glæpamaður en ekki frelsari. Einn í hópnum lét jafnvel að því liggja að ef ekki kæmu til Ólympíuleikarnir, væri hann með byssu í hönd að berjast við setuliðið.
Þessi frétt féll vægast sagt ekki í kramið og fulltrúar stjórnarinnar í Bagdað sáu ástæðu til að draga hana í efa, kenndu um rangri þýðingu eða hreinum fölsunum. Grant Wahl hefur nú áréttað að hann standi við fréttina – knattspyrnumenninrnir séu æfir og telji Bush hinn versta mann.
Þetta er mál sem áhugavert er að fylgjast með.
* * *
Sjoppukeppnin er æsispennandi. Staðan er:
Borgarnes 10 : Staðarskáli 17
Baula 14 : Fjallakaffi 12
Hallinn 12 : BSÁ 14
Draumurinn 12 : Vikivaki 10
Miðað við þessa þátttöku ætti okkur ekki að verða skotaskuld að slá metið…