Væri það ekki skemmtilegt ef vatnselgur væri ekki veðurfræðilegt fyrirbæri heldur spendýr? Elgir sem lifðu neðansjávar – það væri sjón að sjá!
En það var sem sagt vatnselgur á heimavelli Boston United og því var deildarbikarleikurinn í gær blásinn af. Það er að ýmsu leyti gleðileg niðurstaða. Núna er nefnilega búið að draga í 2.umferð keppninnar og fyrir liggur að sigurliðið fær heimaleik gegn Fulham. Slíkur leikur gefur væntanlega einhvern pening í kassann, auk þess sem það er alltaf gaman að spila við úrvalsdeildarlið. Það er því orðið til nokkurs að vinna fyrir báða klúbba.
Annar möguleiki sem þessi frestun opnar er sá að kannski verði leikurinn settur niður á tíma sem hentar Sky. Gazza er að spila með Boston um þessar mundir og því alls ekki ótrúlegt að Sky Sport gæti hugsað sér að sjónvarpa leik með liðinu. Ég krossa í það minnsta fingur…
* * *
Úrslit liggja fyrir í fyrstu viðureign undanúrslita sjoppukeppninnar. Þar sem Staðarskáli hefur þegar tekið afgerandi forystu gegn Borgarnesi, 25:11, telst þeirri keppni lokið. Staðarskáli er kominn í úrslitaleikinn.
Aðrar viðureignir eru hins vegar gríðarlega spennandi. Staðan er:
Baula 19 : Fjallakaffi, Möðrudal 16
Hallinn 17 : BSÁ 17
Draumurinn 15 : Vikivaki 15
Þegar hafa 35 greitt atkvæði í fyrstu keppninni. Gamla metið – 46 – er skammt undan. Og koma svo!!!