Alveg var ég búinn að gleyma því hversu djöfullega óþægilegt það er að safna skeggi. Verð loðnaði með hverjum deginum, en kláðinn minnkar ekki neitt. Vika í viðbót og þá ætti það versta að vera búið, trúi ekki öðru.
Annars hef ég takmarkaða trú á þessari skeggvaxtartilraun, því ég hef alltaf haft efasemdir um of mikinn skeggvöxt lágvaxinna manna. Við getum virst ennþá meiri rindlar fyrir vikið. Hins vegar eru andlitshár ágæt í skítaveðri eins og nú er.
* * *
Fréttablaðið var ekki komið þegar ég skreið á fætur. Það kemur oft seint, en í þessari viku er ástandið sérlega slæmt. Líklega er skýringin sú að blaðberinn sé grunnskólanemi og farinn að reykja krakk í verkfallinu.
Ég er alvarlega að íhuga að hringja á skrifstofur Morgunblaðsins til að kvarta yfir þessum seinagangi á blaðinu. Það væri álíka gáfulegt og hjá öllum fíflunum sem skammast í grunnskólakennurum yfir öllum framhaldsskólaverkföllunum sem þeir hafa lent í.
* * *
Stofnfundur í gær hjá róttæknimiðstöðinni í Garðastræti. Það er röskur hópur sem stendur að rekstri hússins og gaman að fylgjast með þessu framtaki. Aldrei þessu vant tókst mér þó að komast hjá því að lenda í stjórn. Félagsmálakvótinn er fullur í bili, ég get ekki bætt meiru við ef ég á að ná að sinna þessu bærilega.
Á sumar hefur t.a.m. mikill tími farið í FRAM. Þar er ég nú í aðalstjórn og er að komast inn í allskonar mál sem ég hafði ekki áður látið mig varða. Stóra viðfangsefni FRAM á næstu árum eru vitaskuld flutningarnir í hlíðar Úlfarsfells. Því verður spennandi að fylgjast með og taka þátt í.
* * *
Hélduð þið nokkuð að þjóðarsjoppukeppnin, CHOPIN 2004, hefði lognast út af. Því er nú öðru nær. Komið er að úrslitaleiknum í dreifbýlisflokki. Þar keppa:
Baula og Staðarskáli
Þetta eru augljóslega tvær afar ólíkar sjoppur. Staðarskáli er klassískur söluskáli með hamborgaragrilli og tilheyrandi. Allir þeir sem ekki eru Brúar-stubbar, stoppa í Staðarskála.
Baula er á hinn bóginn þessi alternatíva-sjoppa. Þeir sem ekki vilja stoppa í Borgarnesi eiga griðarstað í Baulu. Þá er rekstraraðili staðarins höfuðsnillingur.
Kjósið nú!