Horfði á nýja pólitíska umræðuþáttinn á Skjá einum. Þetta byrjar bærilega. Valið á þátttakendunum var heldur íhaldssamt. Jónína Bjartmarz og Jóhanna Sigurðardóttir eru kannski ekki æsilegustu viðmælendurnir. Sigríður Andresen ætti að hugsa sig tvisvar um næst þegar henni verður boðið að mæta í þátt með Ögmundi Jónassyni. Sérstaklega var skemmtilegt þegar hún viðurkenndi að hún hefði ekki lesið Sólbakssamninginn, sem Ömmi hafði kynnt sér – en skammaðist um leið út í einhverja ASí-menn sem hefðu tjáð sig um sama samning án þess að lesa hann!
Sjálfur kom ég reyndar óbeint að gerð þáttarins. Var nefnilega fenginn til að leika Jóhönnu Sigurðardóttur í æfingarupptökum í gær. Jóhanna er mun betri en ég í hlutverki sjálfrar sín.
* * *
Um daginn var Luton valin skítaborg Bretlands. Núna hefur Kenilworth Road verið valinn næstmesti skítaleikvangur Englands. Enginn Luton-maður móðgast yfir þessu. Þetta er skítavöllur.
Textavarpið heldur áfram ósvífnum lygum um stöðu okkar í deildinni. Hið rétta er að Luton er með 10 sigra og 2 jafntefli í 12 leikjum. Við höfum níu stiga forskot og framtíðin er björt!
Næsti leikur er heima gegn Huddersfield um næstu helgi.