Er Live and Let Die lélegasta Bond-myndin? Svei mér þá, ef það er ekki bara svo!
Margar hafa Bond-stúlkurnar verið slappar, en blökkustelpan Rosie er fer nærri því að vera sú verst leikna. Tarot-spilalesarinn lék betur, en það var ekki hægt annað en að fá kjánahroll yfir afmeyjunarsenunni þar sem hún glataði spádómsgáfunni í bælinu með Bond.
Hvernig stendur á því að í James Bond-myndum er söguþráðurinn hiklaust látinn fara um þekkt nafngreind ríki í Evrópu og Asíu, en í Rómönsku Ameríku eru búin til bullnöfn á eyjum og heilu ríkin eru diktuð upp? Hvers vegna mátti Live and Let Die ekki gerast á Haiti? Óttaðist kvikmyndaverið mótmæli frá sendiráðinu?
Ekki var kvikmyndaframleiðandinn í það minnsta hræddur við málsókn frá réttindasamtökum bandarískra blökkumanna. Var einhver bandarískur svertingi í myndinni sem ekki var klæddur eins og melludólgur? Annars var óborganlegasta sena myndarinnar þegar flókið njósnakerfi glæpakóngsins fylgist með ferðum Bonds í leigubíl fram og aftur götur Harlem. Öll fyrirhöfnin verður þó kjánaleg þegar í ljós kemur að sjálfur leigubílsstjórinn er á snærum vonda kallsins.
Um persónu heimsku sveitalöggunnar undir lokin vil ég sem fæst orð hafa. Sömuleiðis fimm mínútna brandarann í byrjun myndar sem gekk út á það eitt að Bond væri með hálfberrassaða stelpu falda inni í fataskáp og fúli stjórinn mátti ekki sjá hana… tíhí!
En við að horfa á Bond-myndirnar í striklotu kemur í ljós að handritshöfundarnir þjást af þremur fóbíum, sem sífellt skjóta upp kollinum. Þeir eru hræddir við:
i) Hákarla – alltaf skal Bond þurfa að kljást við þær grimmu skepnur.
ii) Lestarklefa – magnað hversu oft kemur til átaka í lestarklefum í þessum myndum.
iii) Fólk með gervilimi – skyldu manneskjur með króka í stað handa eða stálskolta í stað tanngarðs vera illa innrættar frá náttúrunnar hendi eða er það fötlunin sem breytir þeim í ófreskjur? Skiptir ekki máli, en eftir stendur að ótrúlega hátt hlutfall af illvirkjum í Bond-myndum er fatlað fólk.
# kveður að sinni.