Guðjón Þórðarson lýsti leik Arsenal og Manchester United ásamt Snorra Má í gærkvöld. Þar vakti sérsta athygli mína þegar einn Arsenal-maðurinn skeiðaði í gegnum vörn andstæðinganna og var næstum búinn að skora. Þegar atvikið var um garð gengið fór Guðjón að útskýra fyrir áhorfendum hvað gerst hefði.
„Þarna sáum við að hann tók svokallað hlaup í gegnum vörnina…“
Þetta vakti forvitni mína. Hvað á Guðjón við með hugtakinu „svokallað hlaup“? Er það eitthvað sem við labbakútarnir myndum kalla hlaup, en sem sérfræðingarnir vita að er eitthvað allt annað?
Eða meina knattspyrnuþjálfarar kannski ekki það sama og við hin þegar þeir ræða um hlaup? Er hið „svokallaða hlaup“ það sama og sauðsvartur almúginn telur að sé hlaup – eða er hið „svokallaða hlaup“ kannski allt öðru vísi – valhopp eða eitthvað? Hvað á maður eiginlega að halda?
Merkilegt hversu mikið vald getur fólgist í sakleysislegum innskotsorðum á borð við þetta. Sá sem getur kryddað orðfæri sitt með því að skjóta inn orðum eins og „svokallað“ eða „það sem margir/sumir kalla…“ virðist sjálfkrafa búa yfir sérfræðiþekkingu.
Ég ætti kannski að fara að taka þetta upp í ríkari mæli sjálfur? Kannski ég geri það næst þegar ég sest niður til að framkvæma það sem sumir kalla „að blogga“, á hina svokölluðu tölvu mína…
Já, ég er ekki fjarri því að þetta virki!