„Já, finnst þér þetta ekki skemmtilegt? Það er ekki skrítið – eðlisfræðitilraunir eru nú ekki mjög spennandi fyrir stelpur!“ Eitthvað á þessa leið sagði kennslukona við litla stelpu sem var að vandræðast með áttavitatilraun í Rafheimum áðan. Ég hrökk við og leitaði strax að merkjum um gamansemi eða kaldhæðni í málrómnum en fann ekki.
Nú er fullt af flottum setningum í námsskrán grunnskólans um að auka áhuga stúlkna á raungreinum og bæta kynjahlutfallið á raungreinadeildum. Þær hafa samt ekki mikið að segja þegar kennarar segja stelpunum blákalt að þeim megi finnast eðlisfræði leiðinleg.
# # # # # # # # # # # # #
Keppnin fyrir austan í gær var lífleg. Logi reyndar að drepast úr flensu, en ég held að áhorfendur hafi ekkert tekið eftir því í útsendingunni. Það var auglýst opið hús og bæjarbúar fjölmenntu á tökustað. Gallinn við það var reyndar að einhverjir unglingar voru með háreysti og a.m.k. einu sinni reyndu áhorfendur að gjamma svarið í miðri keppni.
Akureyringar bættu sig talsvert frá útvarpinu, en Egilsstaðamenn voru á svipuðu róli og þar. Svo virtist sem þeir væru alveg mettir eftir að hafa komist í Sjónvarpið. Gunnar miðjumaður ME skipaði sér í flokk með Ara MS-ingi, sem fulltrúi glaðværra keppenda sem fagna innilega góðum svörum. Slík kátína fer í taugarnar á sumum lesendum þessarar síðu, en ekki mér. Það er einmitt skemmtilegra að hafa hressa keppendur eins og í gær.
Nú hlýtur sú spurning að vakna hvað gert verður í undanúrslitunum. Akureyringar vilja ólmir fá keppni norður og sú krafa hlýtur að vega þungt – í það minnsta ef þeir dragast á móti MS eða Versló sem fengið hafa heimaleiki í fjórðungsúrslitum.