íðan bönkuðu upp á tveir unglingsstrákar úr Háteigsskóla. Þeir voru að betla dósir og flöskur. Ég tók þeim vitaskuld með kostum og kynjum.
Dósa- og flöskuskápur heimilisins var við það að fyllast og það hefði bara kallað á vesen og leiðindi. Hingað koma sárasjaldan krakkar að betla dósir og þess utan kann ég eiginlega ekki við að láta smábörn fá vínflöskur og bjórdósir, þannig að ég týni bara til gos- og djúsumbúðir. Bólugrafnir fimmtán ára strákar ættu hins vegar alveg að þola að sjá áfengisumbúðir og geta borið sekki fulla af glerflöskum.
Háteigsskóli er að safna fyrir ferð til Frakklands. Fagna því allir góðir menn!