Rétt í þessu var ég að greiða LíN fyrri greiðslu ársins af námslánunum mínum. Gjalddagi var 1.mars en eindagi þremur dögum síðar – má það? Ég hélt að eindagi þyrfti að vera amk. 10-15 dögum eftir gjalddaga.
Ég skulda uþb. eina og hálfa milljón eftir MSc-námið mitt, en fór námslánalaust í gegnum BA-ið. Það tókst með því að aféta mömmu og pabba, auk þess sem ég féfletti miskunnarlaust framhaldsskóla öll mín námsár, þar sem ég þjálfaði Morfís-lið og seldi mig dýrt.
Steinunn skuldar hálfa milljón frá fyrsta árinu sínu í Hí. Á hverju ári tilkynnir LíN henni að nú sé komið að skuldadögum. Og á hverju ári sendir hún sama bréfið sem útskýrir hvers vegna svo sé ekki. Lánasjóðurinn hefur öll gögn við hendina, en samt er alltaf sama streðið í samskiptunum við hann.
Á morgun mun ég skemmta mér við að eiga samskipti við aðra bráðskemmtilega stofnun – Tryggingastofnun – þar sem skila þarf pappírum vegna fæðingarorlofsins. Heimsókn í þjónustuverið á dögunum skilaði litlum árangri. Afgreiðslukonan gat ekki svarað spurningu Steinunnar um grundvallaratriði; skildi ekki spurningarnar mínar og sendi mig af stað með rangt eyðublað. Hins vegar tók hún það þrívegis fram í stuttu samtalinu að tekjur umfram 600 þús. á mánuði gæfu ekki orlofsgreiðslur… – lúxusvandamál…
# # # # # # # # # # # # #
Illu heilli er ekki kennsla hjá okkur Sverri á morgun. Þessar kennslustundir hafa nefnilega verið frábærar til að beina huganum frá spurningakeppninni um kvöldið. Á kennslunni er enginn tími til að stressast upp og fara á taugum yfir einhverjum mögulegum vafaatriðum.
Er mjög spenntur fyrir keppninni, á von á sterkum liðum og held að spurningarnar séu með betra móti.
Jamm.