Kökkur

Sjónvarpið er greinilega með fyrirbura-þema þessa vikuna. Á gær var sjónvarpsmynd um dauðastrí­ð fyrirbura og sálarangist foreldranna, í­ kvöld er heimildarþáttur frá BBC.

Á gær ætlaði ég að horfa á Bleika pardusinn á Skjá einum. Kom mér vel fyrir ásamt Laphroigh-flösku, sem ætlunin var að grynnka í­. Eftir því­ sem senurnar í­ myndinni urðu langdregnari og ófyndnari, datt ég meira og meira inn í­ fyrirbura-myndina.

Lí­klega hafði viskýið sitt að segja, en eftir því­ sem leið á gerðist ég stöðugt melankólí­skari og var að lokum kominn með heljarmikinn kökk í­ hálsinn. Ekki legg ég í­ þessa sjónvarpsmynd í­ kvöld – þótt dagskrárkynning láti að því­ liggja að hún endi vel.

# # # # # # # # # # # # #

Bryndí­s kemur í­ kvöldmat. Saltað hrossakjöt verður á boðstólum. Það er ekki amalegt og ódýrari mat er erfitt að finna.

# # # # # # # # # # # # #

Upprifjun Steina á Múrnum á pólití­skum ferli ísgeirs Hannes Eirí­kssonar er kostuleg!

# # # # # # # # # # # # #

Um helgina vann Hearts Celtic-menn á útivelli í­ skosku deildinni. Blöðin segja að sigurinn hafi verið verðskuldaður.

Ætli ég láti þá ekki verða af því­ að horfa á Hearts : Celtic kl. 11 á sunnudagsmorguninn kemur, í­ undanúrslitum bikarkeppninnar?

Ef Páll Kristjánsson frændi minn les þessa færslu, þá væri gaman að horfa á leikinn með honum á einhverri knæpunni – Palli er nefnilega ákafasti Hearts-stuðningsmaður sem ég veit um.

– Kannski ég ætti að fjalla um hann í­ Palladómum?