Búast má við að Ölgerðin Egill Skallagrímsson sendi frá sér afkomuviðvörun seinna í dag.
Undanfarnar vikur hefur Steinunn drukkið Egils sódavatn í tíma og ótíma til að losna við brjóstsviða. Eftir gærkvöldið er ljóst að þeim viðskiptum er lokið í bili. Vonandi þarf fyrirtækið ekki að segja upp starfsfólki vegna þessa sölusamdráttar.
Ólína Stefánsdóttir er hin brattasta, 3080 grömm og 48 sentimetrar. Steinunn er sömuleiðis hress.
Jamm.