Seinni partinn í gær flutti fjölskyldan aftur inn á Mánagötuna.
Eldhúsaðstaðan er reyndar ekki upp á marga fiska. Við fengum hraðsuðuhellur lánaðar og Sigga Kristins og Jón Torfa lánuðu okkur ísskáp. Við vöskum upp í baðherberginu og blöndum þar pela. Flókin matargerð bíður seinni tíma.
Mikið er samt gott að vera komin aftur heim.