Leiðindagaurinn Internet

Internetið er gleðispillir 21. aldarinnar.

Herra Google er búinn að eyðileggja ótal spurningaleiki. Spurningahöfundar geta hnoðað saman skemmtilegum spurningum, sem reyna eiga á minni fólks eða tengigáfu – en einföld gúgglun eyðileggur langflestar þessara þrauta á örfáum sekúndum.

Sú var lí­ka tí­ðin að menn gátu slengt fram lí­flegum og skemmtilegum sögum eða staðhæfingum, þar sem frásagnargleðin fékk að njóta sí­n laus undan oki staðreyndanna – núna er hægðarleikur að skjóta slí­kar frásagnir í­ kaf.

Á dögunum var Bob Geldof hankaður á frásögn sinni af í­talskri eyju, sem átti að vera að drukkna í­ lí­kum skipbrota Afrí­kubúa. Afhjúpunin var pí­nleg, þó ég eigi bágt með að skilja hvaða pólití­ska sigur Björn Bjarnason taldi sig vinna með því­ að rifja hana upp í­ grein.

En nú hefur félagi Geldof aftur stigið í­ spí­natið. Nú hafa leiðindagaurar á netinu hankað hann á sögunni af Birhan litlu, stelpunni sem varð táknmynd Band Aid á sí­num tí­ma. Smátt? Jú vissulega – en rétt skal vera rétt…

# # # # # # # # # # # # # #

Leiðin liggur til Eyja á sunnudag, þar sem Fram keppir við íBV.

Sá mörkin úr leik KR og Skagans í­ fréttunum. Ætli mörg mörk hafi verið skoruð af viðlí­ka löngu færi í­ í­slenska boltanum og seinna mark íA?