Jæja, ekki fékk ég neina ýsu í kvöld. Flutningamennirnir komu ekki með tveggja metra Santo-ísskápinn fyrr en laust fyrir kl. sjö. Ristað brauð varð að duga í staðinn.
Ekki finnst mér Santo vera traustvekjandi nafn á ísskápi. Hljómar frekar eins og gosdrykkjategund. En flottur er hann.
Bauð Palla á leikinn – þar sem mig minnti að þetta væri heimaleikur okkar og ég ætti því nóg af miðum. Það væri synd að segja að leikurinn hafi verið fjörugur, en úrslitin þeim mun ánægjulegri. Þróttarar falla, ég hef enga trú á öðru.
Þá er næsta formsatriði eftir – að slá FH út úr bikarnum í næstu viku.
# # # # # # # # # # # # #
Á morgun fær grísinn þriggja mánaða sprautuna. Spái því að ég eigi eftir að hrína álíka hátt og barnið við stunguna.