Vinnudeginum lauk í vettvangsferð í gamla spennistöð. Strákarnir í spennistöðvadeildinni mega eiga það að þeir muna eftir að hringja í Minjasafnið áður en gömlu dóti er keyrt á haugana. Að þessu sinni var um að ræða geymslukompu í Holtunum, þar sem greinilega hafði verið lítill efnislager á sjötta áratugnum.
Það er helst í ferðum sem þessum að safnvörðurinn á Minjasafni OR getur upplifað sig sem Indiana Jones, sem brýst í gegnum frumskóginn í leit að dýrgripum. Þarna var þó ekki að finna neitt sem talist gat í frásagnir færandi – einkum rofa- og tengladót, sem við áttum fyrir og ryðgaða bolta og skrúfur. Helst datt mér í hug að hirða tóma olíudunka, smurningsolíuflöskur o.þ.h. sem ég hefði komið á írbæjarsafn – en í ljós kom að búið var að stefna írbæingum á staðinn hvort sem var.
Gat þó ekki stillt mig um að grípa tóman 5 litra terpentínubrúsa merktan Hörpu. Hvað er það við gamlar umbúðir sem gerir þær svona skemmtilegar? – Býst við að ég skelli brúsanum í jarðlínutengivagninn í sýningarsalnum á safninu, innan um gömlu verkfærin. Skyldu jarðlínumenn hafa haft terpentínu með í för? Tja, eigum við ekki bara að segja það…
# # # # # # # # # # # #
Luton spilar úti gegn Reading í deildarbikarnum í kvöld. Held að Hearts sé að leika við Livingston í skoska deildarbikarnum, sem er afskaplega lágt skrifuð keppni. Stóri leikurinn í skoska boltanum til þessa er á laugardaginn: Hearts gegn Rangers. Ég skrifaði Sýn og spurði hvort ekki stæði til að sýna leikinn eða í það minnsta upptöku af honum. Hef engin svör fengið og einhver kappaksturskeppni er auglýst á þessum tíma.