Á allan dag hefur verið sagt frá því í fréttum að bandarískir vísindamenn hafi komist að þeirri niðurstöðu að Spænska veikin hafi upphaflega verið fuglaflensa frá Austurlöndum fjær.
Uhh… ég hélt að ALLAR inflúensur ættu upptök sín hjá fuglum þarna austur frá. Frá þessu er samt sagt eins og gríðarlegri uppgötvun!
Ég held að það sé alveg farið að verða tímabært að ég komi fyrirlestrinum mínum: Var Svarti dauði fuglaflensa? í útgáfuhæft form.
# # # # # # # # # # # # #
Smiðurinn kláraði loksins í dag vinnuna í eldhúsinu. Hann setti upp búrskáp og eldhúsborð. Get ekki beðið eftir að vakna í fyrramálið og éta serjósið sitjandi við almennilegt eldhúsborð í stað þess að hlaupa með allt dótið inn í stofu eins og vant er.
Verst að nýja helluborðið hefur leitt í ljós að potta- og pönnusafn heimilisins er skran. Hvar er best að kaupa slíka gripi án þess að lenda á fátækrahæli í kjölfarið?
# # # # # # # # # # # # #
Fínn fundur hjá SHA í Friðarhúsinu í kvöld. Um helgina verður unnið í að setja upp annað klósett og vonandi færumst við eitthvað nær því að eignast eldhúskrók. Þá þarf að byrja að hengja upp á veggina. Nóg er af myndefninu. – Laghentir sjálfboðaliðar velkomnir á laugardaginn.
Um næstu helgi verður svo rætt um fjármál og fjármögnun. Friðelskir lesendur þessarar síðu eru eindregið hvattir til að kaupa sér hlutabréf.
# # # # # # # # # # # # #
Hannes Hólmsteinn situr í súpunni vegna skrifa á íslenska heimasíðu sína um Jón Ólafsson. Að sögn lögfræðinga skiptir máli að skrifin voru á ensku – og þess vegna hafi enskur dómstóll haft lögsögu í því.
Ætli þetta þýði að einhver Færeyingur gæti dregið mig fyrir dóm í Þórshöfn ef ég gæfi honum á baukinn á þessum vettvangi? Færeyska og íslenska eru nálega með sama ritmál… – Á það minnsta ætla ég alveg að stilla mig um að hjóla í einhverja Færeyinga í bráð. Efast um að ég fengi veð upp á tólf millur útá Mánagötuna ofan á aðrar skuldir.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag sat ég tvo fundi. Á báðum voru nýbyggingar ofarlega á baugi.
Stjórnarfundur í FRAM fór einkum í að ræða viðbygginguna við íþróttahúsið/félagsheimilið, sem gengið hefur ansi hægt að klára. Nýi salurinn er reyndar stórglæsilegur og verður væntanlega tekinn formlega í notkun á karla- eða kvennakvöldi í nóvember – eftir því hvort verður haldið fyrst. Þessi aðstaða mun gagnast okkur vel næstu árin, en persónulega vona ég að árin í Safamýrinni verði ekki mörg í viðbót. Því fyrr sem við flytjum upp að hlíðum Úlfarsfells, því betra. Ekki botna ég í borginni að vera ekki byrjuð að úthluta lóðum þar í stórum stíl.
Seinni fundurinn var í skólanefnd MR. Þar skoðuðum við framkvæmdir við Kösu Nova, sem þó eru aðeins brot af stóra draumnum um stórfelldar nýbyggingar á MR-reitnum. Það er búið að teikna svæðið, en því miður er allt óljóst með framvinduna. Líklega fara næstu tvö sumur í að lappa upp á Kösu. Þá taka við viðhaldsverkefni í gamla skólahúsinu og víðar. Seint og um síðir gætu menn svo byrjað á nýbyggingunum. Kemst þótt hægt fari…