Dagsetningar geta verið mikilvægar. Fáar dagsetningar eru þó mikilvægari en „best fyrir“-leiðbeiningarnar á sumum matvælum.
Um níuleytið í gær át ég síðbúinn kvöldverð – jógúrt úr ísskápnum. Meðan ég át hana hugsaði ég með mér að þetta væri nú ekki bragðgóður kvöldverður.
Tuttugu mínútum síðar var ég orðinn það eirðarlaus í maganum að ég ákvað að skoða umbúðirnar betur. Á ljós kom að fernan var komin viku fram yfir neysludag.
Það sem eftir var kvöldi og fram á morgun gekk á með sífelldum klósettferðum, þar sem meltingarvegurinn ákvað að kominn væri tími á jólahreingerningu með góðu eða illu. Ég er lurkum laminn.