Technology & Culture, uppáhaldstímaritið mitt kom í gær. Aðalgreinin fjallar um hugmyndir manna um öryggismál við framleiðslu ísskápa og kælikerfa í upphafi þeirrar atvinnugreinar. Svo er önnur grein um þátt dílasóttvarna við þróun DDT. Þetta eru greinar sem kalla á tilhlaup áður en maður leggur til atlögu.
# # # # # # # # # # # # #
Það er skítaveður úti, en grísinn sefur í vagninum sínum úti á tröppum. Ef veðrið verður svona á mánudaginn mun félagi Llion fá áfall þegar hann stígur út úr flugstöðinni – hvað þá þegar ég tilkynni honum að við séum á leiðinni í sund.
# # # # # # # # # # # # #
Spark í sjónvarpinu í kvöld. Fylkir og Breiðablik etja kappi, ef ég man röðina rétt. Á minningunni var þetta skemmtilegur þáttur. Á sama tíma er hins vegar Latibær í sjónvarpinu, þannig að barnafjölskyldur þessa lands missa líkast til allar af gamanmálum okkar Tóta.
# # # # # # # # # # # # #
Luton mætir Coventry á morgun. Vonandi fer McSheffrey ekki að skora gegn sínum gömlu félögum – það væri illa gert, þar sem dvölin hjá okkur kom ferli hans á réttan kjöl.