Gesturinn floginn

Llion hélt aftur heim til Lundúna í­ dag. Það var frábært að rifja upp tí­mann í­ Edinborg. Á gær dró ég hann á pöbbarölt ásamt Stebba Hagalí­n. Þeim varð strax vel til vina.

# # # # # # # # # # # # #

Á laugardag verður aðalfundur SHA, þar sem meðal annars er efnt til málþings um í­slenska herinn – hvernig stjórnvöld reyna að koma upp her á laun. Kristinn Hrafnsson og Friðrik Guðmundsson, höfundar myndarinnar „Íslenska sveitin“ mæta og lýsa reynslu sinni frá Afganistan. Ekki missa af því­.

Svo verður partý um kvöldið. Nú er gaman að vera til.

Sjá dagskrána hér.

# # # # # # # # # # # # #

Mæti í­ viðtal á Talstöðinni kl. 9:20 í­ fyrramálið. Þar verður rætt um laugardagsfundinn og eflaust um stofnun Friðarhússins lí­ka.

Við teljum að Friðarhús SHA ehf. sé orðið fjölmennasta einkahlutafélag á Íslandi. Það er ekki amalegt.

Allt gott fólk getur gerst hluthafar. Hægt er að leggja inn á reikningsnúmerið: 0130-26-2530 kt. 600404-2530. Verð á hlut er kr. 10.000, en vitaskuld er hægt að kaupa meira en einn hlut.

Palli og ég erum um þessar mundir á fullu að svipast um eftir barmmerkjagerðarverkefnum – enda fer hagnaðurinn af slí­kum viðvikum beint í­ að kaupa fleiri bréf. Eftir sem áður erum við kræsnir á verkefnin. Við búum bara til merki fyrir aðila sem við erum sammála í­ veigamiklum atriðum. Við vinnum ekki fyrir fyrirtæki og ekki fyrir Framsóknarflokkinn eða frambjóðendur í­ prófkjöri í­haldsins.

# # # # # # # # # # # # #

Sagan af hví­tlauks-hatandi andófsmanninum á bloggi Kjartans og Sylví­u er skemmtileg.

Kannski hugtakið harðlí­numaður muni í­ framtí­ðinni gengisfalla á sama hátt og andófsmaður.

# # # # # # # # # # # # #

Þóra systir heldur áfram að birta myndir af barninu.

Sú frá kvennaverkfallinu er flottust.

# # # # # # # # # # # # #

Allt í­ skralli hjá Luton núna. Ekki vegna árangursins á vellinum – þótt þar mætti vissulega ganga betur (dottnir niður í­ fjórða sæti) – heldur er vallarmálin í­ uppnámi. Á áratugi hafa menn stefnt að byggingu nýs vallar en nú virðist málið aftur á byrjunarreit. Það er vægast sagt þungt hljóðið í­ stuðningsmönnum.