Keppnin hálfnuð

Keppnin Orkujarlinn 2005 er hálfnuð. Ní­u umferðum er lokið af átján. Af þeim 27 stigum sem í­ boði voru, gekk 21 stig út og þau skiptast á sjö keppendur. Staðan er:

5 stig Snæbjörn Guðmundsson
5 stig Gí­sli ísgeirsson
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Sigurður Magnússon
1 stig Hilmar Hilmarsson

Hugsanlega verður blásið til tí­undu umferðar strax í­ kvöld, en kannski nenni ég því­ ekki. Fer nokkuð eftir því­ hversu mikið Ólí­na lætur hafa fyrir sér og hvort ég ákveð að stússast í­ barmmerkjagerð yfir sjónvarpinu.

# # # # # # # # # # # # #

Amma lagðist inn á spí­tala í­ byrjun þessarar viku. Hún lenti á deild sem sameinuð var annarri slí­kri deild við samruna Landsspí­talans og Borgarspí­talans á sí­num tí­ma. Eftir samrunan og þá frábæru hagræðingu sem þetta á allt að hafa skilað eru alltaf færri pláss en sjúklingar. Fyrir vikið svaf gamla konan í­ rúmi frammi á gangi.

Það á ví­st að vera grí­ðarlegt gleðiefni fyrir okkur öll að gamalt fólk sofi á göngum spí­talanna. Hagræðing! Sparnaður! Samlegðaráhrif! Bætt fjármálastjórnun! Húrra!