Orkujarlinn 2005, 6. umferð, fyrsta vísbending

Það segir sí­na sögu um hinar frábæru viðtökur Orkujarlsins að eftir fimm umferðir hafa fimm keppendur hlotið stig. En þegar þriðjungur keppninnar er senn að baki hlýtur sú spurning að vakna hvort einhverjum keppanda takist að ná afgerandi forystu. Staðan er:

3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Gí­sli ísgeirsson
1 stig Hilmar Hilmarsson

Hugum þá að sjöttu umferð, fyrstu ví­sbendingu. Að þessu sinni er spurt um í­slenska virkjun.

Byggingartí­mi þessarar virkjunnar var einhver sá lengsti sem þekkst hefur hér á landi, því­ 32 ár liðu frá því­ að stöðin var tekin í­ notkun og þar til búið var að reisa yfir hana stöðvarhús. Ekki stóðu þó yfir framkvæmdir allan þennan tí­ma, því­ lengst af voru vélar stöðvarinnar einfaldlega keyrðar undir beru lofti.

Hver er virkjunin?