Það eru gríðarlegar sviptingar í Orkujarlinum. Snæbjörn Guðmundsson hefur tekið afgerandi forystu, eftir að hafa fengið fimm stig í tveimur síðustu umferðum. Staðan er því þessi:
5 stig Snæbjörn Guðmundsson
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Gísli ísgeirsson
1 stig Hilmar Hilmarsson
Nú er spurt um frumkvöðul í íslenskum orkumálum.
Frumkvöðull þessi hafði nokkuð annan bakgrunn en kollegar hans úr stétt fyrstu íslensku verk- og tæknifræðinganna, því eftir útskrift starfaði hann um skeið við járnbrautakerfi Danmerkur og í stórri gasstöð. Þessi reynsla átti eftir að hafa áhrif á störf hans á Íslandi.
Hver er frumkvöðullinn?