Fyrsti fundur nýrrar miðnefndar SHA var í kvöld. Ég var endurkjörinn formaður og Siggi Flosa heldur enn um tékkheftið. Fastir liðir eins og venjulega…
Mér líst rosalega vel á hópinn. Stemningin var fín. Held að þetta verði gott ár.
Sjálfum hefur mér tekist lygilega vel að halda mér frá öðrum tímafrekum verkefnum, til að geta hlúð að SHA í ár.
# # # # # # # # # # # # #
Á gær hlustaði ég á Illuga Jökulsson ræða við prest um útfarir. Kveikjan var fréttaflutningur af fólki sem vill láta jarða sig með golfkylfum o.þ.h.
Sá prestlærði útskýrði að það væri smekklaust og arfur frá heiðni að vilja láta planta viský-fleygum og slíku dóti með í kistuna. Kristnir menn höfnuðu því að látið fólk gæti setið að sumbli í líkkistunni eftir dauðann.
Á hinn bóginn taldi klerkur það vera fallegan sið að setja sálmabækur á brjóst hins látna, opnar á eftirlætissálmi viðkomandi. Það væri táknrænn gjörningur.
Það er sem sagt heiðinn vitleysisgangur þegar þeir trúlausu vilja taka drykkjarföng með sér í gröfina – en stórsniðugt þegar þeir Kristnu hafa með sér lesefni. Merkilegt…
# # # # # # # # # # # # #
Hlustaði á Auði Haralds á Talstöðinni í dag. Það staðfesti þá skoðun mína að hún sé fyndnasti Íslendingurinn. Ójá.
# # # # # # # # # # # # #
Allir fjölmiðlar hamra á því að Tony Blair hafi tapað og málstaður mannréttindasamtaka unnið í kosningum gærdagsins í Bretlandi. Hvílík fásinna! Lögregluyfirvöld hafa nú öðlast rétt til að halda mönnum í tæpan mánuð án kæru, ef þau telja ástæðu til. Þetta er í raun útvíkkun á lögum sem sett voru gegn IRA á áttunda áratugnum – nema þá gilti heimild lögreglunnar í viku.
Umræðurnar um málið, jafnt á breska þinginu sem í fjölmiðlum, bera það með sér hvað fasisminn er sterkur í vestrænum samfélögum. Ef ekki tekst að mynda öfluga mótstöðuhreyfingu gegn honum óttast ég mjög hvernig ástandið verður orðið eftir áratug eða svo.