Tvö rétt svör bárust við 11. spurningu Orkujarlsins 2005. Þeir Andrés Ingi Jónsson og Snæbjörn Guðmundsson svöruðu báðir réttilega að um Selfoss væri að ræða, en það var vitaskuld Kaupfélag írnesinga sem átti hitaveituna.
Þrátt fyrir að ég hafi látið að því liggja í upphafi keppninnar að til greina kæma að fleiri en einn keppandi gætu fengið stig í hverri umferð, hef ég fallið frá því. Við nánari umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að það geti eiginlega ekki gengið upp. – Hér, líkt og í stórmyndinni The Highlander gildir að einungis einn getur staðið uppi sem sigurvegari.
Andrés Ingi fær því stigin eftirsóttu og staðan eftir 11 umferðir er því þessi:
5 stig Snæbjörn Guðmundsson
5 stig Gísli ísgeirsson
3 stig Jóhanna Helgadóttir
3 stig Nanna Rögnvaldardóttir
3 stig Þorbjörn Rúnarsson
3 stig Andrés Ingi Jónsson
2 stig Örn Úlfar Sævarsson
2 stig Sigurður Magnússon
1 stig Hilmar Hilmarsson