Samsæriskenning

Ég er búinn að búa til samsæriskenningu varðandi Jóns Ólafssonar-viðtalið.

Páll Magnússon og hans gamli vinnuveitandi kokkuðu upp auglýsingabrellu. Blása af viðtal með miklum látum á sí­ðustu stundu – til að hálf þjóðin trúi því­ að kippt hafi verið í­ spotta úr stjórnarráðinu.

Daginn eftir er svo blaðamannafundur vegna útkomu bókarinnar sem verður rifin út.

Tóm sviðsetning allt saman!

Góð kenning?