Fyrirlesturinn minn á hádegisfundi Verkfræðingafélagsins gekk vel að mér fannst. Um 70 manns mættu, sem var mun meira en ég bjóst við.
Hópurinn virtist áhugasamur og umræðurnar á eftir voru fínar – þó reyndar væri á tímabili reynt að draga mig inn í einhverjar umræður um hvort rétt væri að sameina Verkfræðingafélagið og Tæknifræðingafélagið – ekki hef ég neina skoðun á því máli.