Leiðbeinandi í Rafheimum messar yfir unglingahópi: „Og svo sjáiði hvernig segullinn fellur í gegnum koparvafninginn og það hægir á honum, því hluti af orkunni fer í að kveikja ljós á þessari litlu peru… – já, ert þú með spurningu?“
Nemandi með hönd á lofti: Já… hvers vegna líturðu út eins og Peter Jackson?
# # # # # # # # # # # # #
Á kvöld fer Steinunn á fund. Verð einn í kotinu með barnið að horfa á Meistaradeildina á Sýn, Liverpool gegn Real Betis. Góðir menn eru velkomnir í heimsókn. Góðir menn hafa sömuleiðis gemsanúmerið mitt og geta þannig boðað komu sína.