Eftir fjóra tapleiki í röð, er Luton að braggast. Við unnum Crewe á þriðjudagskvöldið og lögðum Crystal Palace í gær, að sögn á mjög sannfærandi hátt. Ég var farinn að halda að tímabilið væri að renna út í sandinn, en þessi úrslit gera það að verkum að allt er ennþá mögulegt.
Næsta laugardag mætum við toppliði Reading á útivelli og vikuna þar á eftir Southampton í beinni á Sky.
# # # # # # # # # # # # #
Spurningakeppnin í Friðarhúsinu tókst vonum framar. Hugsanlega verður komið upp þeirri venju að birta spurningarnar á Friðarvefnum að keppni lokinni. Það yrði amk. nánar auglýst hér ef af yrði.