Sit eins og fínn maður í joggingbuxum, eins og ég væri markvörðurinn Kiraly, heima hjá mér á miðjum degi. Fyrsti dagur í feðraorlofi og ég einn í kotinu með barnið. Steinunn vaknaði fyrir allar aldir til að mæta á stjórnarfund í Öryrkjabandalaginu. Mér er til efs að það hafi gerst oftar en 5-6 sinnum á þessum fjórum árum okkar að ég hafi sofið lengur frameftir á virkum degi. (Flensur og sjálfskaparveikindi undanskilin.)
Seinnipartinn liggur leiðin m.a. í VíS að fá stærri barnabílstól. Þá væri heldur ekki úr vegi að líta við hjá Gísla ísgeirssyni að innheimta verðlaunin fyrir spurningakeppnina hans á dögunum. Samt finnst mér ég hálfkjánalegur að taka við verðlaunum fyrir keppnina hans, þar sem ég gaf honum ekkert fyrir sigurinn í minni keppni.
Nú liggur beint við að verðlaun í bókmenntaspurningakeppni hljóta að vera bók – en hver eru viðeigandi verðlaun í spurningakeppni um orkumál? Rúmmetri af heitu vatni?
# # # # # # # # # # # # #
Talandi um spurningakeppni. Fréttablaðið ljóstrar því upp í dag að ég sé meðal þátttakenda í nýju spurningakeppninni á Stöð 2. Ég hafði ekki þorað að blogga neitt um málið, enda miklar kröfur um leynd af hálfu framleiðenda.
Það var Logi sem bað mig um að taka þátt í þessari keppni og ég var ekki í neinni aðstöðu til að neita, enda reddaði Logi okkur á sínum tíma fyrir spurningaþáttinn Spark þar sem hann mætti snemma á sunnudagsmorgni með hálftíma fyrirvara. Sá þáttur verður reyndar sendur út næsta föstudagskvöld og er hin mesta skemmtun.
Held ég tjái mig þó ekki meira um þessa Stöðvar 2-keppni að sinni. Mætti á undirbúningsfund fyrr í vikunni og get vottað að þarna verður enginn hörgull á spurninganjörðum af öllum aldri.