Hvernig stendur á því að Vera hefur ekki borist hingað í óratíma? Er blaðið hætt að koma út? Hvers vegna hefur maður þá ekkert heyrt af því?
* * *
Kári Pétur Ólafsson, sæbjúgnasjóræningi og athafnamaður í Grundarfirði, hefur sett fram þá kenningu að gengi íslensku krónunnar fari ekki eftir stýrivöxtum Seðlabankans eða öðrum slíkum bábiljum, heldur sé það beintengt við gengi Luton. Hann staðhæfir í það minnsta að fylgnin þarna á milli sé ekkert fjær lagi en margt þruglið í hagfræðingunum. Samkvæmt þessu munum við buffa Stók á laugardaginn. Það væri ekki leiðinlegt.
* * *
Nú lesa skrilljón manns þessa síðu og því tilvalið að plögga. Fyrr í kvöld sendi ég skeyti á póstlista Samtaka herstöðvaandstæðinga. Þar segir meðal annars:
Föstudagskvöldið 16. desember verður mikið um dýrðir í húsum SHA (Njálsgötu 87), því þá verður öðru sinni haldinn fjáröflunarmálsverður Friðarhússins. Gert er ráð fyrir að samkomur þessar verði mánaðarlegar, en geysigóður rómur var gerður að síðasta málsverði. Á það skiptið var Sigrún Gunnlaugsdóttir yfirmatreiðslumeistari, en nú mun Guðrún Bóasdóttir (Systa) stjórna pottum og pönnum.
Nákvæmur matseðill liggur enn ekki fyrir, en fyrir liggur að tvenns konar aðalréttur verður í boði, annar fyrir grænmetisætur. Borðhald hefst kl. 19, en húsið verður opnað hálftíma fyrr. Maturinn kostar einungis 1.000 krónur, en einnig verða léttar veitingar á vægu verði á boðstólum.
Laugardaginn 17. desember klukkan 16 hefst svo reyklausa spurningakeppnin „Friðarpípan“. Það er spurningakeppni í anda breskra „pub quiz“-keppna, þar sem gestir og gangandi geta spreytt sig á spurningum um hin aðskiljanlegustu efni. Verðlaun eru í boði, auk gríðarlegs heiðurs.
Húsfyllir var á síðustu Friðarpípu fyrir tæpum mánuði og eflaust verða undirtektirnar ekki lakari að þessu sinni. Þrír spurningapakkar verða í boði og má ætla að gamanið standi til hálf sjö eða þar um bil. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Léttar veitingar á vægu verði.
+
Þar sem annar hver spurninganörd landsins skoðar þessa síðu, má búast við fjölmenni úr þeirri stétt á Friðarpípuna.