Það er lítið bloggað um þessar mundir. ístæðan er sú að ég keppist við að undirbúa fyrirlesturinn sem við Skúli munum flytja í hádeginu á þriðjudaginn (Skúli verður reyndar staddur í Berlín – hvernig við munum leysa það mál verður bara að koma í ljós).
Á fyrirlestrinum, sem ber heitið „Á knattspyrnuvelli framfaranna“ verður meðal annars vitnað í skrif eftir Bush og Marx.
Þá ekki þá George og Karl…
Verið spennt – verið mjög spennt, eins og kerlingin sagði.