Tengdó gaf svínaræktarmafíunni langt nef í jólamatnum og bauð upp á lambahrygg í kvöld. Hann var lostæti. Við vorum sex í matnum: við famelían, tengdó Gvendur og Vigdís.
Komum klyfjuð af gjöfum, enda keppast menn við að gefa barninu föt og leikföng. Steinunn er skriðin upp í rúm að lesa Argóarflísina eftir Sjón. Geri sjálfur ráð fyrir að byrja á Guðrúnu Evu Mínervudóttur á eftir.
Á fyrramálið fyllist kotið svo af fólki. Við bjóðum nefnilega í bröns. Það verður sérstaklega gaman að hitta Þóru systur, sem er nýsloppin heim úr verkfallinu í New York.
Jamm.