Ohh… Luton tapaði heima í dag, gegn erkióvinunum í Watford. Erum um miðja deild og heldur á niðurleið. Kannski ekki við öðru að búast á fyrsta ári í deildinni með lítinn hóp.
Þessi úrslit gefa heldur ekki ástæðu til bjartsýni fyrir bikarleikinn gegn Liverpool á laugardaginn, sem ég býst við að verði í beinni á Sýn.
Á marsmánuði sé ég fram á að vinnutengda ferð til Bretlands. Kannski tekst mér að bæta við degi og ná leik. Það yrði væntanlega heimaleikur gegn Leicester eða Derby. Dagsetningarnar eru ekki enn komnar á hreint.
* * * * * * * * * * * * *
Las yfir áramótafærsluna mína, þar sem hlaupið var yfir helstu atburði ársins. Sé að þar steingleymdi ég að nefna eldsvoðann á Mánagötunni og stórfelldar framkvæmdir í íbúðinni í kjölfarið. Iss, það er ekki hægt að muna eftir slíkum smámunum.