Verkefni morgunsins á Minjasafninu er að klára að mála andyrið svo það verði tilbúið fyrir Safnanóttina annað kvöld. Þá geta allir góðir menn mætt í Elliðaárdalinn, farið í gönguferð í leiðsögn minni og Guðbrands Benediktssonar á írbæjarsafni (sem er gamall skólabróðir og snillingur), drukkið kakó eins og þeir fengju borgað fyrir það og fiktað í tækjunumí Rafheimum.
Best er þó fyrir fólk að hefja safnanóttina í Friðarhúsi á föstudagskvöldið og borða krásir sem Guðrún Bóasdóttir eldar. Það kostar ekki nema þúsundkall, sem er auðvitað ekkert verð. Sjá nánar á Friðarvefnum.
En aftur að málningarvinnunni: vandinn er að nú þarf ég að mála í loftinu og hef til þess vondan stiga en ekki tröppu – eins og þó hefði verið betra. Búist því fastlega við því að ég detti og hálsbrjóti mig eða helli yfir mig grænu málningunni.
# # # # # # # # # # # # #
Flottur sigur hjá Barcelona í gær. Því fyrr sem búið er að koma öllum ensku liðunum úr keppni, því betra. Þá fyrst verður hægt að þola lýsingarnar frá leikjunum.
# # # # # # # # # # # # #
Verktakinn sem er að grafa grunninn að húsi fornbílaklúbbsins í Elliðaárdal keppist við. Mér hafði alltaf verið sagt að landið sem byggja skal á væri botnlaus mýri og að tillraunamokstur hefði stutt það. Við að fylgjast með þessum framkvæmdum virðist mér grunnurinn hins vegar alls ekki djúpur. Er þó grafið niður á fast.
Gaman væri að vita hvernig útboðið fyrir jarðvegsvinnuna hljóðaði. Annað hvort spara fornbílamenn sér núna góðan pening eða verktakinn stórgræðir.
# # # # # # # # # # # # #
Á kvöld verður farið út að borða. Stefnan er tekin á La Primavera, sem er einn af Food & Fun-veitingastöðunum. Þar er auglýstur breskur kokkur, Andrew Parkinson.
Auðvitað veit ég að herra Parkinson stendur ekki sveittur við í eldhúsinu að malla ofan í gesti kvöldsins. Hann hefur varla gert meira en að setja saman matseðilinn og verður sjálfur í Bláa lóninu eða í partýum hjá Baldvin kjötprangara. Það breytir því ekki að á þessari hátíð er hægt að fá góðan mat á sanngjörnu verði. Þetta verður þriðja árið í röð sem við nýtum okkur það.
# # # # # # # # # # # # #
ítveislan mikla gerir það að verkum að ég þarf að taka upp fyrstu GB-keppnina, milli Borgarholtsskóla og Flensborgar. Ég kannast við þjálfara beggja liða og mun því samfagna hvoru liðinu sem fer með sigur af hólmi. Báðir skólar stefndu á að komast í sjónvarpið og draumurinn um að komast í undanúrslitin er því bara bónus.
Miðað við frammistöðu liðanna í útvarpinu ætti keppnin að verða hnífjöfn. Þá er bara spurning hvort liðið bæti sig mest milli umferða. Eitthvað segir mér að Borghyltingum muni ganga betur að búi sitt fólk undir stökkið sem er milli útvarps- og sjónvarpskeppni. Spái Borgarholti því í sæti í undanúrslitum þriðja árið í röð.