Ég er ekki viss um að ég sé að kaupa þessar nýjustu fréttir af Palme-málinu. Samkvæmt þeim var forsætisráðherrann skotinn í misgripum af smákrimma.
Nú geri ég mér grein fyrir að fólk á misauðvelt með að þekkja andlit – en fjandakornið, sá sem rekst á forsætisráðherra lands síns á gangi hugsar varla: „Þessi er eitthvað kunnuglegur – þá hlýtur hann að vera dílerinn sem ég ætlaði að skjóta!“
Eða hvað veit ég?
# # # # # # # # # # # # #
Ekki fengum við Edinborgarslag í úrslitum skoska bikarsins. Liðin mætast í undanúrslitunum en í hinum leiknum eigast við Gretna annars vegar en Dundee eða Hamilton hins vegar. Þótt Gretna sé deild fyrir neðan Dundee og Hamilton, telst liðið sigurstranglegra í þeirri viðureign og því góðar líkur á að lið úr þriðju efstu deild frá 3.000 manna bæ komist í úrslit bikarkeppninnar. Magnað!