Skemmtileg keppni milli MR og MA. ítti reyndar von á báðum liðum sterkari, en engu að síður verður að teljast líklegt að þetta hafi verið úrslitaleikur þessa árs.
Ein uppástunga að breyttri útfærslu á myndaþrautinni:
Það er dálítið billegt þegar annað liðið fær gefins stig vegna þess að hitt liðið klárar báða sénsana sína og myndin birtist í heild sinni. Betra væri að skilja alltaf eftir síðustu „púsluna“ – þannig að seinna liðið þyrfti amk að hafa eitthvað fyrir hlutunum.
Að öðru: Örnólfur Thorlacius á eftir að semja í það minnsta eina grein í Moggann til að gera harðorðar athugasemdir við Svarta dauða-spurningu kvöldsins. Af henni mátti skilja að menn væru almennt búnir að afskrifa bakteríusjúkdóminn kýlapest sem orsök Svarta dauða. Hið rétta er að sú skýring er viðtekin hjá þorra lækna og líffræðinga. Öll uppflettirit halda sig við þessa skýringu.
Á síðustu árum hafa hins vegar komið fram áhugaverðar kenningar í aðra veru. Þar á meðal er hugmyndin um einhverskonar veirusjúkdóm. Þetta er algjört minnihlutasjónarmið – þótt rökstuðningurinn sé trúverðugur. Taugaveikiskenninguna sem nefnd var í spurningunni aðhyllast sárafáir.
Ekkert af þessu varðaði sjálft spurningaefnið, heldur var hugsað sem aukafróðleikur frá dómaranum – svo það gat engin áhrif haft á úrslitin á hvorn veginn sem var. Það mun þó ekki stoppa Örnólf…