Hallgrímur Helgason skrifar í Fréttablaðið í morgun og upplýsti að fyrir fjórum árum hafi hann kosið Björn Bjarnason og Sjálfstæðisflokkinn. Hann sér mikið á eftir þessu og útskýrir að þetta hafi hann gert vegna þess að R-listinn hafi verið svo slappur fyrstu tvö kjörtímabilin en síðan farið á kostum 2002-2006.
Þetta er afar athyglisverð söguskoðun. Ég hélt að flestir væru sammála um að R-listinn hafi einmitt átt sínar bestu stundir fyrstu árin, en síðan fatast flugið og leiðst út í innanhúsátök og leiðindi. Þess utan sýnist mér að drjúgur hluti þeirra verkefna sem Hallgrímur telur upp sem dæmi um hin frábæru verk þriðja kjörtímabilsins hafi verið hafin 2002 þegar rithöfundurinn studdi Björn Bjarnason. Svona geta menn séð pólitíkina í ólíku ljósi.
# # # # # # # # # # # # #
Helv. Watford komst upp í efstu deild. Það þýðir að stuðningsmenn þeirra verða gjörsamlega óþolandi á Luton-spjallborðinu næsta vetur – nema reyndar ef liðið verður á svipuðu róli og Sunderland í ár. Það er svo sem ekki ólíkleg staða.
# # # # # # # # # # # # #
Það er verið að taka Hótel Borg í gegn og eigendurnir lofa stórglæsilegu hóteli og veitingastað eftir breytingar. Það verður gaman að sjá hvort bókaskápurinn sem er fullur af ensku laga- og reglugerðarsafni í 150 bindum mun fá að halda sér. Nákvæmlega hvað á að vera töff við slíkt „bókasafn“?