Skrifaði smápistil á Friðarvefinn í dag, hvern allir lesi.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag fékk ég vinnufélaga í heimsókn sem spurði hvort ég hefði einhverjar upplýsingar eða vitneskju um sögu Gasstöðvar Reykjavíkur. Hann varð hálfkindarlegur þegar ég dró fram 110 blaðsíðna BA-ritgerðina mína um sögu Gasstöðvarinnar.
Hann lét sér samt nægja stuttu útgáfuna sem ég birti í Rafmagnsveitublaðinu 1998. Það er synd, ég er viss um að hann hefði getað skemmt sér við að lesa kaflana um aukaafurðir gasstöðvarinnar: koksið, tjöruna og ammoníakið.
# # # # # # # # # # # # #
Steinunn fór út í kvöld að hella í sig kokteilum og éta eitthvert góðgæti ásamt Ernu. Við feðginin létum okkur nægja að steikja eitthvað kjöt í dulargervi úr plastbakka og suðum nokkrar kartöflur. Maður á ekki að éta kartöflur á þessum tíma árs. Þær eru allar vibbi. Gamlar og ekkert eftir nema hratið.
Um daginn slógu allir fjölmiðlar upp fréttum af því að nýjar kartöflur væru komnar í búðir. Spurðist fyrir um þær í verslun um daginn, en fékk þau svör að þetta hefði verið fjölmiðlastönt, nokkrir sekkir hefðu verið teknir upp úr jörðinni og selst upp á hálftíma – þess utan var þetta ekki einu sinni gullauga, sem eru langbestu kartöflurnar heldur einhver önnur týpa.
Eftir svona viku er von á alvöru sendingu. Þá verður lagst í kartöfluát og kartöflur étnar með öllum mat eða bara einar og sér.
# # # # # # # # # # # # #
FRAM heldur upp í Hólahverfi annað kvöld (föstudagskvöld) og keppir við Leiknismenn. Held að Sverrir ætli að taka sénsinn og mæta með mér á völlinn, hann hefur annars reynst hin versta óheillakráka. Af þeim tíu leikjum sem búnir eru af Íslandsmótinu hefur hann mætt á tvo – jafnteflið gegn Ólsurum og tapið gegn Þrótti. Á hinn bóginn höfum við unnið hina átta leikina.
Annars þoli ég Leiknismönnum vel að ná árangri í fyrstu deildinni. Það er eitt af þeim íþróttafélögum sem mér er hvað best við. Sömuleiðis mættu HK-menn alveg fara með okkur upp í úrvalsdeildina á kostnað Þróttara. Andúð mín á Þrótti fer vaxandi, án þess að ég geti skýrt hvernig hún sé tilkomin. Þegar ég var pjakkur átti ég meira að segja til að mæta á Þróttarleiki í gömlu þriðju deildinni til að hvetja Sæviðarsundsklúbbinn…
# # # # # # # # # # # # #
Hvatning mín um daginn til íslenskra tölvunörda hefur ennþá engu skilað. Magni ísgeirsson er enn ekki kominn með síðu um sig á ensku Wikipediunni. Hvar er þjóðernismetnaður ísleskra Wiki-nörda? Mér er spurn!